Af hverju góður lampi skiptir máli við Gel-X ásetningu

Af hverju góður lampi skiptir máli við Gel-X ásetningu

Sem eigandi RÖFN verslun fæ ég oft spurningar um Gel-X, gel vörur og UV/LED lampa. Ég elska Gel-X og mæli klárlega með þessum vörum þegar þær eru notaðar rétt. Gel-X neglur geta verið fallegar, endingargóðar og mildari fyrir náttúrulegu nöglina heldur en margt annað. En það er eitt sem mér finnst mikilvægt að tala meira um:

Óhert gel

Margir átta sig ekki á því hversu mikilvægt það er að gelið harðni alveg í gegn. Ef gelið er ekki fullhert getur það valdið húðertingu og jafnvel ofnæmi fyrir gel vörum með tímanum sem getur leitt til alvarlegs ofnæmis fyrir allskyns vörum eins og t.d. þær sem tannlæknar nota. Rannsóknir og sérfræðingar í naglaiðnaðinum hafa ítrekað bent á að “under curing” eða vanherðing á efni sé ein helsta ástæða acrylate ofnæmis hjá fólki sem notar gel vörur.


Hvað veldur því að gel harðnar ekki rétt?

Algengustu ástæðurnar eru:

- Veikur eða lélegur lampi

- Rangur herðingar (curing) tími

- Of þykkt lag af efnum

- Hendur ekki rétt staðsettar í lampanum

- Lampi sem passar ekki við vörurnar sem verið er að nota

Það kallast “under curing” þegar gelið lítur út fyrir að vera hert en er í raun ekki fullharðnað innst inni. Þá geta óhert efni komist í snertingu við húðina og aukið líkur á ofnæmi með tímanum.


Af hverju mæli ég með góðum lampa?

Góður lampi er ekki bara aukahlutur heldur er hann einn af mikilvægustu pörtunum af gel ásetningu.

Sterkur og áreiðanlegur UV/LED lampi hjálpar til við að:

- Herða gelið rétt

- Minnka líkur á húðertingu og ofnæmi

- Gefa betri endingu

- Koma í veg fyrir lyftingar og sprungur

- Gera ásetninguna öruggari

Það er líka mikilvægt að vita að watt tala ein og sér segir ekki alla söguna.. bylgjulengd, ljósdreifing og gæði lampans skipta líka máli fyrir rétta herðingu.

 

Lamparnir sem ég mæli með hjá RÖFN ✨

 

Omni Light — fullkomið flash cure ljós 

Omni Light er ekki hefðbundinn full-size lampi heldur flash cure ljós sem gerir Gel-X ásetningu miklu auðveldari og þægilegri.

Það er fullkomið til að halda tipsunum á sínum stað á meðan verið er að festa þá og hentar bæði sem handljós eða standandi ljós. Hausinn er stillanlegur svo auðvelt sé að beina ljósinu nákvæmlega þar sem þarf.

Það sem mér finnst geggjað við Omni Light:

- Auðveldar Gel-X ásetningu rosalega mikið

- Þráðlaust og endurhlaðanlegt (USB-C)

- Létt og nett hönnun

- Hægt að nota bæði handheld og standandi

- Frábært verð

Omni Light er sérstaklega hannað með Gel-X vörurnar frá Aprés í huga en það er ekki nóg til að fullherða efnið heldur þarf alltaf að herða neglurnar undir stórum lampa.

Þó Omni Light geti ekki fullhert Gel-X þá mælum við samt með því til að snöggherða efnið svo að tipsarir herðist rétt á! við mælum því sterklega með að fjárfesta í stærri UV/LED lampa ef þú ætlar að gera neglur reglulega eða til lengri tíma. Stærri lampi gefur jafnari og öflugri herðingu á allri hendinni í einu og gerir ásetninguna bæði hraðari og öruggari til lengri tíma 💅

 

SUN 4S — besti lampinn fyrir byrjendur sem lengra komna

SUN 4S er lampinn sem ég mæli með fyrir flesta hvort sem það eru byrjendur, áhugafólk eða naglafræðingar.

Hann er 48W UV/LED lampi með góðri og jafnri herðingu, sensor, timer stillingum og low heat mode. Mér finnst þetta einn besti “budget friendly” lampinn sem samt skilar mjög góðri og öruggri herðingu.

Það sem gerir SUN 4S svona góðan:

- Öflug og jöfn herðing

- 48W UV/LED

- Low heat mode

- Sensor og timer stillingar

- Þægilegur í notkun

- Frábært verð miðað við gæðin sem hann hefur


NOVA Lamp — fyrir fagfólk og þau sem vilja það besta 

Fyrir fagfólk eða þau sem vilja fjárfesta í besta lampanum mæli ég með NOVA lampanum.

NOVA er hágæða lampi sem herðir efnin mjög jafnt og áreiðanlega og er hann hannaður fyrir mikla notkun. Hann hefur mismunandi LED stillingar og sérstaka “bleika” stillingu sem blandar saman bláu og rauðu LED ljósi til að minnka UV exposure á húðinni á meðan neglurnar fá samt rétta herðingu.

Það sem gerir NOVA extra sérstakan er red light therapy stillingin ❤️

Red light therapy stillingin er ekki til að herða efni heldur er hún sérstök stilling fyrir húðumhirðu og meðferð og margir elska hana fyrir:

- þægindin sem fylgja þessari lúxus meðferð

- Góðu áhrifin sem það hefur á húð og liði

- Getur dregið úr bólgum

- Að styðja við kollagenframleiðslu

NOVA er fyrir þau sem vilja bæði öryggi, frammistöðu og lúxus upplifun allt í einum lampa.


Gel-X er öruggt þegar það er gert rétt 

Gel-X og gel vörur eru ekki “hættulegar” þegar þær eru notaðar rétt en röng notkun getur skapað vandamál. Þess vegna finnst mér mikilvægt að fólk skilji hversu stórt hlutverk lampinn spilar í öruggri notkun.

Ég mæli alltaf með:

- Góðum og áreiðanlegum lömpum

- Réttum tímum til herðingar

- Þunnum lögum af efnum

- Að halda geli frá húðinni

- Að nota vörur samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda

Fallegar neglur eiga alltaf að fara fram með öruggri notkun 💅

 

ef þú  hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur og við svörum eins hratt og vel og við getum:)

-Emilía Röfn

Back to blog