Hvernig fjarlægir maður Gel-X neglur?

Hvernig fjarlægir maður Gel-X neglur?

Skref 1: Klippa Gel-X neglurnar

Byrjaðu á að stytta Gel-X neglurnar með naglaklippum. Klipptu þær eins stuttar og hægt er til að auðvelda fjarlægingu. Til að forðast að neglurnar klofni, klipptu þær beint (lárétt).


Skref 2: Þjala af gel lit

Notaðu 180 grit naglaþjöl eða 5-in-1 borbitan okkar og þjalaðu varlega efsta lagið af gel litnum. Einbeittu þér að yfirborði naglanna, þú vilt þjala jafnt og rólega til að forðast að skemma naglabönd eða náttúrulegu nöglina.


Skref 3: Leggja Gel-X í bleyti

Settu bómull bleyttan asetóni beint á nöglina þannig að það hylji nöglina alveg. Láttu liggja í 10–20 mínútur. Þú getur vafið álpappír utan um fingurinn til að halda bómullinni á sínum stað og hjálpa asetóninu að brjóta niður gelið (það er til sérstakur álpappír með innbyggðum bómull til að auðvelda fjarlægingar).


Skref 4: Skafa gelið varlega af

Eftir 10-20 mín, fjarlægðu álpappírinn og bómullina. Notaðu naglabandsýti til að skafa mjúka gelið varlega af. Ef það losnar ekki auðveldlega, endurtaktu skref 3 og leggðu aftur í bleyti í nokkrar mínútur.


Skref 5: Þjala af leifar (valfrjálst)

Ef þú ert að flýta þér geturðu notað 180 grit eða 240 grit þjöl til að fjarlægja afganginn, en passaðu mjög vel að þjala ekki náttúrulegu nöglina.


Skref 6: Hreinsa naglabönd

Eftir að allt gelið er farið, geturðu ýtt naglaböndunum varlega til baka með naglabandsýti. Gerðu það með mjúklegum hreyfingum til að skemma ekki húðina.


Skref 7: Klippa og næra neglurnar

Klipptu varlega burt hangandi húð eða dauða vefi með Cuticle nipper. Að lokum skaltu bera naglabanda olíu á hverja nögl og nudda hana inn. Þetta hjálpar til við að gefa húðinni og nöglunum raka og styrkja, og styður við heilbrigðan vöxt.

Ef þú hefur einhverjar spurningar endilega hafðu samband við okkur og við reynum að hjálpa þér eftir bestu getu💗

Aftur í blogg